Merki SAMFOK

Aðalfundur SAMFOK 2016
haldinn í Norðlingaskóla
mánudaginn 9. maí kl. 19.00 -20.00

Dagskrá:
1. Ávarp formanns SAMFOK
Birgitta Bára Hassenstein.

2. Venjuleg aðalfundarstörf
 Skýrsla stjórnar
 Skýrsla áheyrnarfulltrúa í skóla- og frístundaráði
 Reikningar lagðir fram
 Árgjald ákveðið
 Lagabreytingar
 Kosning stjórnarmanna
 Kosning skoðunarmanna reikninga

4. Önnur mál

Það vantar tvo varamenn í stjórn til eins árs og við viljum biðja áhugasama um að senda okkur póst á samfok@samfok.sveinng.com

Við vekjum athygli á að hverju og einu foreldri grunnskólabarns í Reykjavík er einnig á aðalfundinum frjálst að bjóða sig fram til stjórnarsetu í SAMFOK.

Allir foreldrar grunnskólabarna í Reykjavík eiga rétt á setu á aðalfundi með málfrelsi og tillögurétti. Komi til atkvæðagreiðslu er vægi atkvæða, eitt frá hverju foreldrafélagi og eitt frá hverju skólaráði, skv. 5 gr. laga SAMFOK.

Foreldrar grunnskólabarna í Reykjavík eru hvattir til að mæta á fundinn.

Vegna 5. liðs aðalfundar um lagabreytingar þá gerir stjórn SAMFOK eftirfarandi tillögur að lagabreytingum, aðrar tillögur hafa ekki borist.

Lagt er til að 6. grein laga um stjórn SAMFOK hefjist svona: “Stjórn SAMFOKS skal skipuð a.m.k. sjö fimmforeldrum grunnskólabarna í Reykjavík. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn, þrír tveir stjórnarmenn annað árið og þrír tveir hitt.” Að auki skal kjósa tvo varamenn til eins árs í senn.

Hér má nálgast Lög SAMFOK 2014.