SKÓLI ÁN AÐGREININGAR
GEÐHEILBRIGÐISÞJÓNUSTA VIÐ BÖRN OG UNGMENNNI
ÞJÓNUSTA VIÐ BÖRN OG UNGMENNI MEÐ FJÖLÞÆTTAN VANDA

Teiknuð mynd af brosandi strák í pappakassa. Hann er að rétta upp aðra höndina.

SAMFOK í samstarfi við 11 önnur félagasamtök standa saman að Lausnaþingi fimmtudaginn 27. apríl kl. 14.00. Þingið verður haldið í Skriðu, Stakkahlíð í húsnæði Menntavísindasvið HÍ.

Lausnaþingið er hluti af eftirfylgni með áskorunum sem félagasamtökin sendu út til alþingis- og sveitastjórnarmanna í byrjun árs 2015 og síðan aftur í byrjun árs 2016.

Það hefur lengi verið vitað að þegar börn með einhvers konar sérstöðu passa ekki í „kassann“ á kerfið erfitt með takast á við það. Nýútkomin skýrsla ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga, annað og þriðja þjónustustig, staðfesti það sem fagfólk og aðstandendur hafa lengi vitað. Kerfið er ekki alltaf að virka rétt. Börn eru allt of lengi á biðlistum og á meðan gerist oft lítið eða ekkert í þeirra málum, þroska þeirra og námi. Nú er komið að því að skoða hvað hægt er að gera.

DAGSKRÁ: 
14.00 Lausnaþingið sett, Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, fundarstjóri.

14.05 Jakob Rúnarsson, deildarstjóri á stjórnsýslusviði Ríkisendurskoðunar. Kynning á helstu forsendum og niðurstöðum stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar á geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga á öðru og þriðja þjónustustigi.

14.25 Evald Sæmundsen PhD, sviðsstjóri rannsókna á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
Erindi: Þjónusta við börn – ýmsar pælingar.

14.45 Erna og Steinunn, mæður.
Erindi: Að eiga barn með fjölþættan vanda.

15.00 Kaffihlé.

15.15 Kristín Björnsdóttir og Haukur Guðmundsson. Kristín er dósent í fötlunarfræði, umsjónarmaður starfstengds diplómanáms og nýr umsjónarmaður námsbrautar um sérkennslu. Haukur er háskólanemi.
Erindi: Samvinna í skóla án aðgreiningar.

15.35 Inga Birna Sigfúsdóttir, Sjónarhóli. Inga Birna er menntuð á sviði uppeldis-, menntunar- og þroskaþjálfafræða ásamt mannauðsstjórnun og hefur starfað sl. 9 ár sem ráðgjafi á Sjónarhóli, ráðgjafamiðstöð.
Erindi: Lausnamiðuð nálgun í teymisvinnu.

15.55 Kristín María Indriðadóttir, verkefnastjóri í fjölgreinadeild Lækjarskóla í Hafnarfirði og hefur unnið í mörg ár með „einstaka“ unglinga með fjölbreyttar þarfir í sínu lífi.
Erindi: Einstakir unglingar – önnur nálgun.

16.15 Amanda Watkins, aðstoðarforstjóri Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir, kynnir úttekt á framkvæmd skóla án aðgreiningar hér á landi sem Evrópumiðstöðin annast á þessu ári. Hún kynnir einnig lauslega starfsemi Evrópumiðstöðvarinnar.

16.35 Pallborð – umræður.

Skráning fer fram hér: http://goo.gl/forms/4i08no9VjR
Viðburðurinn á facebook

ADHD samtökin,
Barnaheill – Save the Children á Íslandi,
Einhverfusamtökin,
Félag skólastjórnenda í Reykjavík,
Heimili og skóli,
Landssamtökin Þroskahjálp,
Olnbogabörn,
SAMFOK,
Sjónarhóll,
Umboðsmaður barna,
Umhyggja og
UNICEF

 

Uppfært 2018.

Upptökur frá fundinum má finna hér: Lausnaþing
Því miður mistókst upptakan á sumum erindunum.