Aðalfundur SAMFOK var haldinn í gær, þriðjudaginn 21. maí í Húsaskóla.

Ný stjórn var kosin á fundinum. Nýju stjórnina skipa:

Formaður: Ragnheiður Davíðsdóttir, formaður foreldrafélags Seljaskóla
Áslaug Björk Eggertsdóttir, formaður foreldrafélags Vættaskóla
Hrefna Björk Jóhannsdóttir, fulltrúi foreldra í skólaráði Húsaskóla
Þórunn Steindórsdóttir, formaður foreldrafélags Laugalækjarskóla
Sonja Rúdólfsdóttir Jónsson, foreldri í Ártúnsskóla

Varamenn:
Björn Karlsson, formaður foreldrafélags Hagaskóla
Guðmundur Magnús Daðason, formaður foreldrafélags Ölduselsskóla

Úr stjórn viku Guðlaug Karlsdóttir sem setið hefur í stjórn SAMFOK frá því 2015 og María Sastre sem hefur setið í stjórn síðan 2017. Við þökkum þeim báðum kærlega fyrir vel unnin störf.