Ljósmynd af feðginum að læra saman

Foreldrar í Reykjavík hafa nú aðgang að nýjum og efnismiklum vef sem hefur að markmiði að styðja þá og efla sem virka þátttakendur í starfi og námi barna sinna.  Foreldravefurinn er hugsaður sem hagnýtt verkfæri fyrir foreldra barna á fyrstu tveimur skólastigunum og nær yfir helstu þjónustu borgarinnar við börn á aldrinum 0-16 ára. Gengið er út frá þeirri grunnforsendu að gott samstarf foreldra og skóla tryggi vellíðan, virkni og námsárangur barnsins.

Á Foreldravefnum má m.a. finna hagnýt ráð um hvernig best megi stuðla að velferð barnsins í leikskóla, grunnskóla og frístundastarfi, ráð um hvernig fylgjast megi með skólastarfinu, styðja barnið í námi og undirbúa sig fyrir foreldraviðtöl.

Vefurinn var unnin í samstarfi við foreldra og sérfræðinga í foreldrasamstarfi. Hann var hannaður af Önnu Margréti Sigurðardóttur og er ríkulega myndskreyttur.

Foreldravefinn má finna hér á vef borgarinnar.