Viltu vita meira um nýja námsmatið í grunnskólum?
Fimmtudaginn 12. nóvember verður umræðu og fræðslufundur um nýtt námsmat. Fundurinn verður í Þróttaraheimilinu, Engjavegi 7, 104 Reykjavík kl. 19:30 – 22.
Hér gefst tækifæri til að hlýða á erindi, bera upp fyrirspurnir og taka þátt í umræðum.
Við hvetjum foreldra grunnskólabarna og nemendur í elstu bekkjum grunnskóla til að mæta. Fundarstjóri er Ingvar Sigurgeirsson, prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands.
Dagskrá:
Ávarp: Birgitta Bára Hassenstein, formaður SAMFOK
Erindi: Gylfi Jón Gylfason, sviðsstjóri matssviðs hjá Menntamálastofnun
Jón Pétur Zimsen og Linda Heiðarsdóttir, skólastjórnendur í Réttarholtsskóla
Brynja Sveinsdóttir og Snorri Marteinn Sigurðarson, nemendur í Ingunnarskóla
Kaffihlé og pallborðsumræður.
Í pallborði sitja:
Anna Steinunn Valdimarsdóttir, kennari í Laugalækjarskóla
Guðlaug Sturlaugsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu SFS
Gylfi Jón Gylfason, sviðsstjóri matssviðs Menntamálastofnunar
Hjalti Jón Sveinsson, formaður félags skólameistara í framhaldsskólum
Jón Pétur Zimsen, skólastjóri Réttarholtsskóla
Brynja Sveinsdóttir og Snorri Marteinn Sigurðarson, nemendur í Ingunnarskóla
Uppfært:
Upptökur frá fundinum má sjá hér: Ertu klár?