Siðareglur

Góð samskipti milli foreldra í bekkjum, árgöngum og skólum eru ein grunnstoðin að góðu skólasamfélagi og einnig er það mikilvægur partur af forvörnum að þekkja foreldra skólafélaga barnanna. Til að auðvelda samskipti á milli foreldra hafa mörg foreldrafélög og foreldrahópar nýtt sér Facebook og myndað þar bekkjar- eða árgangasíður. Þar er hægt að skiptast á ýmsum upplýsingum um skóla- og bekkjarstarfið, minna á viðburði eins og afmæli og skipuleggja fjáraflanir.

Það er mikilvægt að hafa í huga að Facebook er ekki réttur vettvangur til að ræða persónuleg málefni barnanna eða gera upp vandamál sem geta myndast í barna- eða foreldrahópnum. Til þess eru aðrir vettvangar.

Til þess að auðvelda foreldrum utanumhald á þessum síðum hefur í nokkurn tíma verið kallað eftir leiðbeinandi siðareglum fyrir þessa hópa. Til að svara kallinu var myndaður starfshópur frá SAMFOK, Heimili og skóla og foreldrum úr fulltrúaráði SAMFOK. Siðareglurnar eru núna tilbúnar og má nálgast þær hér fyrir neðan á PDF formi og sem myndir á JPG formi. Foreldrahópar geta notað reglurnar eins og þær koma fyrir eða aðlagað þær að sínum hópum.

Verið er að þýða reglurnar á ensku og verða þær birtar um leið og því er lokið.

Siðareglur Facebook-hópa – PDF skjal

 

Siðareglur Facebook-hópa 1/2 Siðareglur Facebook-hópa 2/2